Stéttarfélögin á Suðurnesjum óska félagsfólki og fjölskyldum þeirra til hamingju með baráttudag verkafólks þann 1. maí.
Á þessum degi fögnum við því sem unnið hefur í réttindabaráttu verkafólks og óskum öllum til hamingju með daginn.
Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund í Stapa, Hljómahöll 1. maí kl. 14.00 til 16.00 og eru öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Dagskrá
- Húsið opnar kl. 13:45 og tekur Blásturssveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar á móti gestum.
- Guðbjörg Krismundsdóttir, formaður VSFK, setur dagskrá og kynnir.
- Ræðumaður dagsins er Kristján Gunnarsson, formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum.
- Ungleikhúsið / PPU.
- Kósýbandið tekur nokkur lög.
- Leikfélag Keflavíkur með atriði úr söngleiknum We Will Rock You.
- Kór Ytri Njarðvíkurkirkju lokar dagskrá með söng.
- Guðmundur Hermannsson leikur létta tóna fyrir dagskrá og á milli atriða
Bíósýning verður fyrir ungu kynslóðina í Sambíóinu við Hafnargötu kl.12:00, sjá nánari upplýsingar hér
STFS-Starfsmannafélag Suðurnesja • FIT–Félag iðn- og tæknigreina • RFS–Rafiðnaðarsamband Íslands •
VSFK–Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis • VR • BSRB • ASÍ