Kjaramál
Starfsmannafélag Suðurnesja vinnur með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi. Félagið fer með samningsumboð fyrir hönd starfsmanna gagnvart viðsemjendum þeirra. Starfsmaður félagisns er félagsmönnum innan handar við úrlausn vandamála sem upp kunna að koma í starfinu og í samskiptum við vinnuveitanda. Félagið eða hagsmunabandalög þess eiga fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóða félagsmanna sem og í samtarfshópi um starfsmat.
Kjarasamningar
Almennur samningur við Samband ísl. sveitarfélaga:
HSS
HS Veitur
Starfsmat
Niðurstaða vinnu við endurskoðun starfsmatskerfis sveitarfélaganna, SAMSTARFS liggur nú fyrir ásamt starfsmatsniðurstöðum sem unnar voru samkvæmt bókun með gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og stéttarfélaga innan BSRB og ASÍ, sem samið hafa um starfsmat.
Fræðsla
Hér á heimasíðu BSRB má nálgast allskyns upplýsingar sem viðkoma réttindum og skyldum opinberra starfsmanna.
Sjóðir & styrkir
Eyðublöð og umsóknir
Úthlutunarreglur fyrir starfmenntunarsjóð eru:
Sjóðsfélagar geta sótt um styrk þegar félagsmaður hefur greitt iðgjöld í sjóðinn eftir 6 mánuði samfellt í starfi.
Styrkurinn er 130.000 á ári fyrir 100% starf, síðan eftir starfshlutfalli.
Greiðslur úr sjóðnum miðast við almanaksárið.
ATH: Greiðslukvittun úr banka og staðfesting á námi með sýnilegu námsheiti og greiðslu frá skóla/námskeiðshaldara þarf að fylgja umsókninni.
Hér að neðan er að finna umsóknareyðublöð fyrir námsstyrk frá Starfsmannafélagi Suðurnesja:
Námsstyrkur
Lokað er fyrir umsóknir um námsstyrk frá og með 23. júní 2026 til og með 5. ágúst 2026
Aðrir sjóðir og styrkir
Styrktarsjóðurinn Klettur
Sjóðurinn greiðir bætur til sjóðfélaga í slysa-og veikindatilfellum eftir því sem nánar er mælt fyrir í reglum sjóðsins. Sjóðurinn styrkir einnig fyrirbyggjandi aðgerðir á sviði heilsueflingar og forvarnir gegn sjúkdómum sbr. við lið 5 í úthlutunarreglum. Hægt er að kynna sér frekar um sjóðinn hér.
Mannauðssjóðurinn Hekla
Stofnaður hefur verið nýr sjóður, Mannauðssjóðurinn Hekla, sem hefur það markmið að efla starfsfólk sveitarfélaga og tengdra stofnana með markvissri starfsþróun. Sjóðurinn varð til eftir sameiningu Mannauðssjóðs Samflots, Mannauðssjóðs Kjalar og Mannauðssjóðs KSG og byggir á kjarasamningum frá árinu 2024. Hekla tekur yfir alla starfsemi eldri mannauðssjóða.
Með aðsetur á Akureyri mun sjóðurinn reka Mannauðssetur sem hefur það hlutverk að veita stuðning, skipuleggja fræðslu og gera tillögur um leiðir til að auka við þekkingu en einnig að vera í virku samtali um hugmyndir og stefnumótun.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að framþróun með styrkjum til fræðsluverkefna og símenntunar. Sveitarfélög, stofnanir og stéttarfélög sem eiga aðild að sjóðnum fá þannig tækifæri til að bæta við þekkingu og hæfni starfsfólks og styðja við framþróun í starfi.
Nánari upplýsingar má finna hér á heimasíðu sjóðsins:
Launatengd gjöld
Upplýsingar fyrir launagreiðendur.
Starfsmannafélag Suðurnesja
Krossmóa 4
260 Reykjanesbær
Sími 421-2390
Kennitala 611200-3230
Númer félagsins er 649
ATH:
Launagreiðendum ber að senda BSRB skilagreinar fyrir hvern mánuð með sundurliðun iðgjalda til stéttarfélags fyrir hvern launþega.
- Bankaupplýsingar eru: kt.44016-0159 reikn:0516-04-760468
- Félagi greiðir 1,% af heildar launum í félagsgjöld.
- Launagreiðandi greiðir 0,5% af heildar launum í starfsmenntunarsjóð.
- Launagreiðandi greiðir 0,90 % af heildar launum í orlofssjóð.
- Launagreiðandi greiðir 0,75% af heildarlaunum í styrktar og sjúkrasjóð BSRB
Kröfur verða sendar í heimabanka.
- Skilagreinar þurfa að vera sundurliðaðar á hvern fyrir sig og hvern sjóð fyrir sig.
- Ef hægt er að senda skilagreinarnar á SAL formi eru þær sendar á skbibs@bsrb.is
- Skilagreinar sem ekki eru á öðru formi eru sendar á netfangið bsrb-skilagreinar@bsrb.is.
- Skilagreinar á pappír sendist til BSRB, b/t , Björg Geirsdóttir, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
Félagsmannasjóður
og Mannauðssjóður
Upplýsingar fyrir launagreiðendur
Launagreiðendur greiða mánaðarlega framlag í Félagsmannasjóð ( Kötlu ) sem nemur 2,2% af heildarlaunum starfsmanna, tekur gildi frá 1. apríl 2024.
Úthlutun úr sjóðinum skal fara fram 1 febrúar ár hvert.
Launagreiðandi greiðir í Mannauðssjóð Heklu 0,42% af heildarlaunum frá og með 1. desember 2024.
- Þessar greiðslur eru allar lagðar inn á sama reikning , 0516-04-760468 kt.440169-0159
- Skilagreinar þurfa að vera sundurliðaðar á hvern fyrir sig og hvern sjóð fyrir sig.
- Ef hægt er að senda skilagreinarnar á SAL formi eru þær sendar á skbibs@bsrb.is
- Skilagreinar sem ekki eru á öðru formi eru sendar á netfangið bsrb-skilagreinar@bsrb.is.
- Skilagreinar á pappír sendist til BSRB, b/t , Björg Geirsdóttir, Grettisgötu 89, 105 Reykjavík.
ATH bókunarmiðstöð BSRB tekur ekki á móti skilagreinum og greiðslum vegna eftirfarandi iðgjalda:
- Launagreiðandi greiðir í starfsendurhæfingarsjóð 0,10% af heildarlaunum, og eru lífeyrissjóðir sem rukka þetta inn, þá lífeyrissjóður viðkomandi félagsmanns.
- Ef sent er á rafrænu formi þarf sérstaklega að passa að launakerfið sé rétt merkt til þess að greiðslurnar skili sér rétt inn á viðkomandi sjóði.
- Númer félagsins er 649