Stjórn og starfsfólk Starfsmannafélags Suðurnesja, sóttu landsfund bæjarstarfsmannafélaga BSRB sem haldinn var í Vestmannaeyjum dagana 16. til 18. september sl.
Á fundinum var farið yfir ýmis sameiginleg málefni félaganna. Meðal annars var fjallað um stöðu kjaramála, undirbúning og næstu skref í kjaraviðræðum ásamt mikilvægi þess að samstaða sé í réttindabaráttunni. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB, og Jana Eir Víglundsdóttir, hagfræðingur BSRB, fóru yfir stöðu kjaramála og næstu verkefni fram undan.
Fjallað var um mikilvægi virkrar stjórnar og þátttöku í starfi stéttarfélaga undir yfirskriftinni „Virk stjórn er sterkt félag – frá fundarsetu til framkvæmda“.
Á fundinum var einnig unnið í hópum, bæði innan félaga og þvert á félög, að ýmsum málefnum og verkefnum sem félögin standa frammi fyrir. Þar sköpuðust góðar og gagnlegar umræður og þátttakendur fengu tækifæri til að deila reynslu og hugmyndum og læra hverjir af öðrum.
Landsfundurinn er góður vettvangur og gott tækifæri fyrir bæjarstarfsmannafélögin innan BSRB til að hittast, efla samstarf, deila reynslu og ræða sameiginleg verkefni. Mikilvægt að félögin stilli saman strengi sína þegar kemur að kjarasamingsgerð og öðrum málum sem varða félagsfólk.
Dagarnir voru bæði fróðlegir og skemmtilegir. Starfsmannafélag Suðurnesja þakkar STAVEY kærlega fyrir góðar móttökur og vel heppnaðan landsfund.