1.maí 2026 – Hátíðardagskrá í Stapa

1.maí 2026 – Hátíðardagskrá í Stapa

Stéttarfélögin á Suðurnesjum óska félagsfólki og fjölskyldum þeirra til hamingju með baráttudag verkafólks þann 1. maí.

Á þessum degi fögnum við því sem unnið hefur í réttindabaráttu verkafólks og óskum öllum til hamingju með daginn.

Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félagsfólki og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund í Stapa, Hljómahöll 1. maí kl. 14.00 til 16.00 og eru öll velkomin meðan húsrúm leyfir.

Dagskrá

  • Húsið opnar kl. 13:45 og tekur Blásturssveit tónlistarskóla Reykjanesbæjar á móti gestum.
  • Guðbjörg Krismundsdóttir, formaður VSFK, setur dagskrá og kynnir.
  • Ræðumaður dagsins er Kristján Gunnarsson, formaður félags eldri borgara á Suðurnesjum.
  • Ungleikhúsið / PPU.
  • Kósýbandið tekur nokkur lög.
  • Leikfélag Keflavíkur með atriði úr söngleiknum We Will Rock You.
  • Kór Ytri Njarðvíkurkirkju lokar dagskrá með söng.
  • Guðmundur Hermannsson leikur létta tóna fyrir dagskrá og á milli atriða

Bíósýning verður fyrir ungu kynslóðina í Sambíóinu við Hafnargötu kl.12:00, sjá nánari upplýsingar hér

STFS-Starfsmannafélag Suðurnesja • FIT–Félag iðn- og tæknigreina • RFS–Rafiðnaðarsamband Íslands •
VSFK–Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis • VR • BSRB • ASÍ

1.maí 2026 – Hátíðardagskrá í Stapa

Nýjustu fréttirnar