Stéttarfélögin í Reykjanesbæ og nágrenni óska félagsmönnum sínum og öðrum íbúum Suðurnesja gleðilegrar hátíðar á baráttudegi verkalýðsins 1. maí.
Yfirskrift dagsins þetta árið er:
Réttlæti, jöfnuður, velferð
Á þessu degi fögnum við því sem áunnist hefur í réttindabaráttu verkalýðs í gegnum tíðina og leggjum áherslur á nýjar og breyttar kröfur í þágu verkamanna.
Stéttarfélögin á Suðurnesjum bjóða félagsmönnum og öðrum íbúum svæðisins á baráttufund Krossmóa 4. 5. hæð. milli klukkan 14:00 og 16:00 og munu starfsmenn félaganna taka á móti fólki, bjóða upp á kaffi og veitingar á meðan húsrúm leyfir.
Guðmundur Hermannsson spilar ljúfa tónlist og Valdimar mun koma og taka nokkur lög fyrir gesti. Eins mun Leikfélag Keflavíkur koma og skemmta og formenn félaganna ávarpa gesti.
Stéttarfélögin í Krossmóa verða einnig með opið hús á skrifstofum félaganna á 4.hæð og hvetjum við fólk til að koma við og kynna sér starfsemi þeirra.
Að venju bjóða stéttarfélögin upp á bíósýningu fyrir börnin kl. 13:00
