Stéttarfélög bæjarstarfsmanna komu saman til árlegs Landsfundar sem haldin var dagana 19. til 21. nóvember í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, þar sem fimm fulltrúar sóttu frá STFS. Á fundinum fóru formenn félaganna yfir helstu þætti í starfi sinna félaga auk þess sem formaður BSRB fór yfir þjónustuviðmið og samstarf bandalagsins og félaganna sem samþykktur var 2013.
Fulltrúar bæjarstarfsmannafélaganna fóru í umræður og skráðu niður atriði áttu sér stað um kjaramálin og starf samninganefnda svo sem um stöðu og stefnu, skipulag, samstarf og samningavinnuna almennt. Þjónustuviðmið voru rædd, þarf að uppfæra eða gera aðlögun hvað varðar hagsmunagæslu og þjónustu við félagsmenn.
Þátttakendur fengu kynningu frá Hrund Hlöðversdóttur, framkvæmdastjóra Mannauðsjóðsins Heklu, um starfsemi sjóðsins sem Sveitafélög, stofnanir og vinnuveitendur greiða í sjóðinn sem geta sótt um styrk fyrir sitt fólk.
Einnig flutti Þórgnýr Dýrfjörð heimspekingur, erindið „Hin dyggðum prýdda manneskja – um gæði lífsins og hamingjuna sjálfa” þar sem um var að ræða sýn á mannlegar dyggðir, dregið fram mismunandi kimi sálfræðinnar, gildi og hegðun.
Kjölur stéttarfélag í almannaþjónustu, fá bestu þakkir frá STFS fyrir gott skipulag og glæsilegan Landsfund.