Formannaráð BSRB krefst þess að fjármálaráðherra, Daði Már Kristófersson, dragi tafarlaust til baka frumvarp um afnám áminningarskyldu ríkisstarfsmanna. Formannaráðið segir í ályktun sem það sendi frá sér að með frumvarpinu sé ráðist að grundvallarréttindum launafólks og að um eina stærstu réttindaskerðingu á íslenskum vinnumarkaði í áratugi sé að ræða.
Formannaráð BSRB bendir einnig á að áminningarskyldan hindri ekki uppsagnir heldur tryggi að þær séu málefnalegar og sanngjarnar. Hún sé lágmarksvernd gegn geðþótta og misbeitingu valds og sambærileg vernd sé viðurkennd bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum. Afnám hennar myndi veikja starfsöryggi ríkisstarfsmanna verulega og gæti haft víðtæk áhrif á allan opinbera vinnumarkaðinn, þar sem sveitarfélög gætu fylgt í kjölfarið.
Formannaráð BSRB mótmælir áformunum harðlega og krefst þess að stjórnvöld einbeiti sér í staðinn að raunverulegum lausnum; að bæta starfsaðstæður og tryggja að hið opinbera laði að og haldi í hæft starfsfólk.
Lesa má ályktunina hér sem Formannaráð BSRB sendi frá sér í gær.