Á hádegi í dag, þriðjudaginn 16. maí hófst atkvæðagreiðsla um enn umfangsmeiri verkfallsaðgerðir vegna kjaradeilu STFS og 10 annara aðildarfélaga BSRB við Samband íslenskra sveitarfélaga. Atkvæðagreiðslan fer fram rafrænt og mun berast félögum í tölvupósti.
Samband íslenskra sveitarfélaga neitar enn að verða við þeirri sjálfsögðu kröfu að leiðrétta augljósa mismunun á launum starfsfólks sveitarfélaga sem heyrir undir mismunandi kjarasamninga.
Á mannamáli þýðir það að félagar STFS eiga að fá að meðaltali 25% lægri launahækkun og verða af um 140.000 krónum sem aðrir hafa þegar fengið í launaumslagið. Um er að ræða fólk sem vinnur hlið við hlið, jafnvel í sömu starfsheitum innan sömu stofnana sveitarfélaga; t.d innan leikskóla, grunnskóla, heimila fatlaðs fólks, íþróttamannvirkja og áhaldahúsa.
Greidd verða atkvæði um verkföll á ákveðnum vinnustöðum í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Sveitafélagið Vogum sem ætlað er að þrýsta á Samband íslenskra sveitarfélaga að verða við réttlátum kröfum starfsfólks sveitarfélaga um allt land.
Vinnustaðirnir sem um ræðir eru eftifarandi:
Reykjanesbæ : Umhverfismiðstöð (Áhaldahús), Ráðhús (bæjarskrifstofur), Íþrótta-sundmiðstöðvar.
Suðurnesjabæ: Áhaldahús, bæjarskrifstofur, íþrótta-sundmiðstöðvar.
Grindavík: Áhaldahús, bæjarskrifstofur, íþrótta-sundmiðstöð og leikskólinn Laut.
Sveitafélagið Vogum: Áhaldahús, bæjarskrifstofur og leikskólinn Suðurvellir.
Athugið að allt félagsfólk Starfsmannafélag Suðurnesja sem fær greidd laun sín frá Sveitafélögum hefur atkvæðisrétt hvort sem verkföll eru fyrirhuguð á þeirra vinnustað eða ekki. Við hvetjum því öll til að kjósa til að tryggja starfsfólki félaga BSRB hjá sveitarfélögunum sanngjarnar launahækkanir. Þitt atkvæði skiptir máli.