Skilafrestur vegna stjórnarkjörs

  Skilafrestur vegna stjórnarkjörs

Samkvæmt 6. grein laga Starfsmannafélags Suðurnesja, auglýsir uppstillinganefnd félagsins frest til að skila inn tillögum vegna stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 19.apríl 2021. Í kjöri er formaður í stjórn kosinn til tveggja ára einnig tveir aðalmenn í stjórn kosnir til tveggja ára og tveir varamenn kosnir til eins árs.

Tillögum skal skila til Uppstillinganefndar STFS, Krossmóa 4a Reykjanesbæ eigi síðar en 19. mars  2021. Tillögum skal fylgja: nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillagan er gerð um.

Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um.

 

Uppstillingarnefnd

  Skilafrestur vegna stjórnarkjörs

Nýjustu fréttirnar