Skilafrestur vegna stjórnarkjörs 2020

Skilafrestur vegna stjórnarkjörs 2020

Samkvæmt 6. grein laga Starfsmannafélags Suðurnesja, auglýsir uppstillinganefnd félagsins frest til að skila inn tillögum vegna stjórnarkjörs á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 15. apríl 2020.

Í kjöri eru tveir aðalmenn í stjórn.

Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára og tveir varamenn kosnir til eins árs.

Tillögum skal skila til uppstillinganefndar STFS, Krossmóa 4a Reykjanesbæ eigi síðar en 31. mars 2020.

Tillögum skal fylgja: nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillagan er gerð um.

Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um.

 

Uppstillingarnefnd

Skilafrestur vegna stjórnarkjörs 2020

Nýjustu fréttirnar