Aðild að Kötlu félagsmannasjóði eiga eingöngu starfsmenn sveitafélaga, einnig eiga aðild að sjóðnum starfsmenn hjá Hjallastefnunni og sjálfseignarstofnunum sem eru með ákvæði um Félagsmannasjóð í kjarasamningi. Réttur sjóðsfélaga er bundinn við aðild að sjóðnum líkt og reglur sjóðsins kveða á um.
Úthlutun úr sjóðnum fer fram 1. febrúar nk. Hægt er að sækja um hér
ATH: Þeir sem hafa fengið greitt úr sjóðnum árið 2024 vegna starfa sinna árið 2023, þurfa ekki að sækja um þar sem viðeigandi gögn og bankaupplýsingar liggja fyrir.
Ef spurningar vakna um rétt til greiðslu úr sjóðnum hafðu þá samband við okkur í gegnum netfangið stfs@stfs.is eða í síma 421-2390